föstudagur, október 27, 2006

Leiddist ..

.. svo ég ákvað að henda inn linkum á hin bloggin okkar, ég hef án efa gleymt einhverjum eða fleiri með blogg en ég veit af...

Alltaf hægt að bæta við ;)

Ég á víst að vera að vinna, best að reyna að gera eitthvað í því.

Mæli að lokum með LICD fyrir þá sem leiðist :)

miðvikudagur, október 11, 2006

Rok, rok, rok ...

Djöfull er leiðinlegt veður í dag, þetta er akkurat veðrið sem fær mann til að flýja landið. Vindurinn nístir inn að beini og það er ekki einu sinni svo kalt úti !! Það kemur hrollur í mann af niðinum einum og sér. Mikil ósköp hvað er gott að þurfa ekki að vinna úti í svona veðri, en þá reyndar ætti maður án efa rétta gallann til að klæða þetta af sér.
En góðir hálsar, haustið er greinilega komið...